Ég er nú ekki manneskja sem fær oft áblástur eða frunsur
eins og þetta er kallað en það hefur nú ekki alltaf verið
svo!
Ég vaknaði með hryllingsskjálfta oft á tíðum á
unglingsárunum og sleikti gætilega yfir varirnar til að ath hvort
skrímslið væri vaknað
Ef svo var kveið mig nú ærlega fyrir að mæta í skólan
með tvöfalda efri vör með gapandi sárum sem grasseraði einhver
vökvadrulla í 
Svo brást fólk líka alltaf svo illa við, hrökkluðust
undan og neituðu að tala við mig hvað þá horfa á mig. Sumir
héldu að ég hefði verið kýld
Þessum tilvikum fór nú fækkandi sem betur fer og var
þetta farið að koma upp árlega iðulega um áramót, en síðan ég fékk
síðustu árið 2002 hef ég sloppið blessunarlega við
þetta.
Ég sá auglýst eftir fólki með frunsur til ransókna á
nýju lyfi og glotti út í annað, isss ég ætti nú að vera með frunsu
bara svona rétt til að sýna þeim eina alvöru
Tveim dögum seinna aka í morgun vaknaði ég með dúndrandi
æðaslátt í vörinni........... I´M BACK!!!!!!!!!!!!!!!